júní 22 !!
Plans.
Hei! Stuð! Sviti og hiti! Búinn að vera rúmliggjandi þessa helgina og hlustað grrrimmt á tigermilk og glápt á vidjó. Það verður því fátt um hress orð í þessari færslu. En uuu. Já. Sá loks Persona eftir Ingmar Bergman. Helvíti intensív og mögnuð í svitamókinu mínu. Bibi Andersson hress. Og Tigermilk. Og The Pains of being Pure at Heart. Gott stöff.

Belle & Sebastian - I don't love anyone [mp3]
Belle & Sebastian - My wandering days are over [mp3]
The Pains of being Pure at Heart - Young Adult Friction [mp3]
The Pains of being Pure at Heart - Come Saturday [mp3]
**
Smá hressleiki. Nýtt frá Zeigeist. Og The Golden Filter að fara kíkja á airvawes. Jájájá. Svakalega hresst allt saman.
Crystal Fighters - Xtatic Truth (xtra loud mix) [mp3]
La Roux - In for the kill (lifelike remix) [mp3]
The Golden Filter - Solid Gold [mp3]
Zeigeist - Chasing Your Shadow all Around the World [mp3]
**
Reunion. Fór á 10 ára árbæjar-gaggó-reunion um daginn. Haldið í sal fyrir utan mosfellsveit og fyrstu rútur í bæinn um 2:00. Vægi vandræðaleika fyrirfram var um 45%. Hann fór upp í 92% þegar ég rölti inn og sá að það var búið að dreifa smokkum og sleipiefni vandlega yfir öll borð. Jájá. Það er hressleiki.
**
Smá iiindí haa! Nýlegt dót. Því ég er svo hress og svona. Hressasta blöög frá upphafi. Little Big Adventure er sænsk og mónótóna. Og svo nýtt frá Radio Dept. Og svo Birdie. Og svo ekki meir.
Little Big Adventure - Happiest Times [mp3]
Birdie - Let Her Go [mp3]
The Radio Dept. - David [mp3]
**
Nýtt uppáhalds er stúlkna-tríóið Grass Widow frá San Francisco. Hrátt, grípandi og geeeeðveikt! Tekið af demo cd-r sem ég var heppinn að komast yfir. Skylduhlustun!

Grass Widow - Time Could Bend [mp3]
Grass Widow - Cut it Off [mp3]
***
Jæja. Ég ætla fara gera eitthvað að viti og halda áfram að gúffa í mig íbúfen og sólhatti. Góðar stundir.
júní 02 !!
(Fastur punktur óskast.)
Nýtt og læviblandið muuixx komið á mixtape.lazycomet.com. Þetta er flest alveg ógðeðslega sumarlegt og poppað. En þarna inn á milli, þið vitið, melankólíuvæl og sálarhrellingar. En nokkrar staðreyndir:
01. VEIKUR / SLAPPUR VEIÐIMAÐUR. Það er hressandi. Þó engin INFLÚENSA A - H1N1. Eeen ég er að verða góður og mun mæta til vinnu á morgun. Góð saga.
02. SKEGG! Eða svona næstum því. Ég er nokkuð skeggjaður sem verður að teljast til tíðinda. Ég er enn eina ferðina að spá í að splæsa á mig glæsilegri mottu. Hún gæti orðið mitt nýjasta áhugamál. Ég myndi eyða öllum frítíma mínum í að nostra við hana og snyrta. Ég skal taka mynd. Og sjá! HÉR er hægt að skoða mynd af núverandi vexti á frekar mygluðum og veikburða einari upp í rúmi.
Þegar ég bar þessa hugmynd undir þýskan samtarfsmann minn sagði hann "NEIN" og hélt því næst hálftíma ræðu um að ég gæti alveg eins gleymt öllum vonum mínum um kvenhylli í sumar. Motta væri ekkert til að leika sér með. Ég reyndi að sannfæra hann um að glæsileg motta í samfloti með sólgleraugum og svitabandi hlyti að vera nokkuð eitruð blanda. Hann taldi mig hins vegar veruleikafirrtan. EN ÉG SEGI. MOTTUNA AF EÐA Á? Skoðanir eru vel þegnar í þar til gerðu kommentakerfi.
03. KUBB. Ég hef fjárfest í glæsilegasta kubb-setti Ízlands (eða hérumbil). Markmiðið er að verða kominn í landsliðið eftir sumarið. Raunhæft markmið? Vissulega!
**
Woah! OP-1.
GIIIEEFF!
**
Nýja Bill Callahan (sem sumir þekkja ef til vill betur sem smog) er afar góð. Sometimes I wish we were an eagle. Lágstemmt, fallegt og á köflum afar tregafullt. Með betri plötum ársins.
Bill Callahan - Eid Ma Clack Shaw [mp3]
Bill Callahan - Jim Cain [mp3]
**

**
Og annað í sætari kantinum. James Yuill sem hin ágæta Moshi Moshi útgáfa gefur út.
James Yuill - This Sweet Love [mp3]
James Yuill - No Surprise [mp3]
**
Og loks. Nýtt stöff frá White Rabbits og DatA alveg á mörkunum, Our Book and the Authors ansi hrikalegt nafn en fín tónlist og svo gamalt Leopold Greogri stuuuuuuð.
White Rabbits - Percussion Gun [mp3]
DatA - One In a Million [mp3]
Our Book And The Authors - Kids [mp3]
Leopold Gregori - Pigeon Dance [mp3]
Leopold Gregori - Cassata 78 [mp3]
maí 12 !!
Muuixx.
Ha! Emo Einarsson. Hinn mikli snillingur Hafsteinn Michael teiknaði. Ný ofurhetja sem hefur sett sér nokkrar mikilvægar lífsreglur til batnaðar. Vonandi.

***
Ég var mikill aðdáandi gamla Muxtape þar sem maður útbúið rafræn mixtape úr mp3 grauti. 8tracks lofar ansi góðu líka. En já..
EINAR KYNNIR: MUUUIIIXTAPE! Eina muxtape/8tracks ripoffið sem er geeegt! (fyrir utan nokkra galla)
Ég var orðinn þreyttur á pleijlistagaurnum þarna uppi og ákvað að breyta smá til. Þar til ég verð nógu hugmyndaríkur til að splæsa fínu lúkki og jquery töfrum á þetta ætla ég að stela gamla muxtape lúkkinu. Svona að mestu leyti. Ég vona að þeir drepi mig ekki. Þrjú muiiix komin inn. Ýmsir augljósir tæknilegir gallar. En what the hell.
**
P.S. með meiri frítíma og koma fleiri færslur. Lofa!
P.S.P.S. SUMAR! Wúhú!
apríl 14 !!
Uuu!
Lati Einar. Kominn tími á nýjan póst.
**
En já.
Mér var bent á staðreyndavillu í Ég (lesist: um mig) síðunni. Jú mikið rétt. Uppfært. Ekki lengur 23 ára. Og verð reyndar 26 eftir 3 mánuði. Æskuljóminn er horfinn og elliær nöldurseggur tekur við. GEGT!

The Radio Dept. - Strange Things Will Happen [mp3]
Air France - Hold on to me, baby [mp3]
**
Og. Jack Penate gaf út vægast sagt hræðilega plötu árið 2007. Nóg um hana. Ef nýja platan verður eitthvað í líkingu við þetta lag sem nýverið lak út eigum við von á góðu. Arthur Russell fílingur og hoppandi gleði. Jeeee.
Jack Penate - Tonights Today [mp3]
**
My Maudlin Career heitir fjórða plata skosku indí popp sveitarinnar Camera Obscura. Hún hefur einokað eplið ansi grimmt enda frekar epískt stöff. Strengir, melankólía, örlög og ástir. Ég hef reyndar alltaf haldið því fram að þetta séu svíar í skosku dulargervi. En nóg um það.
Camera Obscura - French Navy [mp3]
Camera Obscura - Careless Love [mp3]
**
MixMag mixið frá Aeroplane er eitrað. MixMag - Disco Ballerica fyrir áhugasama. Ég verð að láta þessi tvö lög fylgja. The Day We fell in Love lagið er undurfallegt.

Friendly Fires - Paris (Aeroplane remix) [mp3]
Appaloosa - The Day We Fell in Love [mp3]
**
Ég er elska interspaceið og hvernig það getur stundum uppfyllt mínum stórbrotna og einfalda húmor. LOL-kettlingar og ofur-illmenni.

Og svo er þessi mynd epísk.

mars 25 !!
Sin Fang Bous - Landslide
Þetta kalla ég frekar fullkomið kover á ansi fullkomnu lagi.
Sin Fang Bous covers Fleetwood Mac's Landslide from gogoyoko.
mars 20 !!
Ég er róbóti.
Holy Moly. Milestone fyrir tech dept. í dag. Yeah! Og misnotkun á valdi núna:

Ertu eða þekkiru súper góðan og eiturhressan forritara í leit að vinnu.. og eitthverju fersku? LAMP, músík, gleði, stress og um-fram-allt næs fólk og umhverfi. Láttu vita : einarbirgir at hotmail.com. Olræt!
**
Låt den rätte komma in. Mæli með! Sænsk vampírusnilld. Ansi mikil gæsahúð. Ég er nokkuð viss um að við munum sjá hollywood endurgerð af henni innan 2 ára.

**
Röyksopp hinir norsku mættir með ansi ansi dansvænt stöff. Junior... Lofar mjög góðu við fyrstu hlustanir. En já. Svo rifjaðist upp fyrir mér hvað Melody A.M. platan var ótrúlega góð. Svo hún fór á fóninn. Súr gaur með endalausa samanburði fyrir fortíð. En þessi kemst aftur að innan tíðar.
Röyksopp - The Girl And The Robot [mp3]
Röyksopp - Miss It So Much [mp3]
**
Phoenix.. Ég lengi verið sökker fyrir þessum frönsku poppurum. Þeir gæla eilítið við rafmangið og koma svo með þessa helvítis húkka sem líma sig á heilann. Glaðlegt og endurnærandi. í maí kemur út platan Wolfgang Amadeus Phoenix oog hér er smá forsmekkur.
Phoenix - 1901 [mp3]
Phoenix - Fences [mp3]
mars 15 !!
Running out of power.
OK. Þreyttur. Þrátt fyrir rólyndis rafmagnslaust laugardagskvöld með magaverk. Mig hefur heldur betur ofdreymt að undanförnu. Fyrst. Nokkrar tilkynningar um frekar næs stöff.

Micachu & the Shapes. Þetta er Mica Levi og hún er geðveik. Eða semsagt ekki geðveik en. Eða. Já þetta hjómaði ekki vel. En þessi tónlist er frábær. Tilraunargrautur með alls kyns poppi, súrkáli og hressilegu meðlæti. Nýlega kom út platan Jewellery og hún fær þumað upp.
Micachu & the Shapes - Golden Phone [mp3]
Micachu & the Shapes - Just In Case [mp3]
Micachu & the Shapes - Vulture feat. the Shapes [mp3]
**
OK. Fanfarlo. Heyrði þetta fyrst óma frá the MARKETING DEPARTMENT. Þetta er efnilega epískt.
Fanfarlo - I'm A Pilot [mp3]
Fanfarlo - Ghosts [mp3]
**
OK. Moderat. Zúri benti um daginn á hið magnaða samstarf Apparat og Modeselektor. Listasmíð. Mæli með!
Moderat - A New Error [mp3]
Moderat - Rusty Nails [mp3]
**
OK.
**
OK. Bleeding Noses tók óvænta stefnubreytingu og er komin í elektró poppið. Meira um það síðar. Skynamleg ákvörðun. Þetta hefur ekkert með nýlegar rannsóknir um aðdáendur digital hardcore stefnunnar. Að sjálfsögðu ekki. En já niðurstöður þeirra rannsókna voru frekar áhugaverðar - kvenkynshlutinn þótti gríðar harðgerður og grimmur og fannst fátt jafnast á við að éta viðkvæm blóm sér til dægastyttingar.
mars 01 !!
Sóldánar sveiflunnar.
Ég og Atli mynduðum um helgina hið óviðjafnanlega dj-tvíeyki sóldánar sveiflunnar. Og þegar við gerumst útrásarvíkingar verðum við Sultans of Swing. Húrra.
**
**
Fleetwood Mac á sunnudegi.
Fleetwood Mac - Dreams [mp3]
Fleetwood Mac - Landslide [mp3]
**
Joanna Newsom á sunnudegi.
Joanna Newsom - The Sprout and the Bean [mp3]
Joanna Newsom - Peach, Plum, Pear [mp3]
**
Og ef vidjóið úr síðustu færslu hafi farið framhjá þér.
The Verlaines - Death and the Maiden [mp3]
**
Tim Ten Yen er frekar mikið uppáhalds þessa daganna. Meðfylgjandi lög eru tekin af plötunni Everything Beautiful Reminds Me Of You sem kom út í fyrra. Hressandi snilld. Synd að hafa að hafa misst af honum þegar hann spilaði hérlendis fyrir rúmlega ári.
Tim Ten Yen - Girl Number One [mp3]
Tim Ten Yen - The Bear and the Fox [mp3]
febrúar 25 !!
Death & the Maiden
1987. The Verlaines eru ei sorgbitinn. Þetta er geðveikt. Njótið.
febrúar 22 !!
DJ Lysander Devore Byrne.
Bammbammbammbammbammbamm. Og krass! Tónleikarík helgi að baki. En ég er búinn að fá hressilegt óþol fyrir þessu næturlífi. En já. Sunnudagsbíó og Yes Man. Kom nú bara á óvart. Og gemmer rómantík! Ég er að spá í að breytast í hopeless-romantik naívista. Það væri hressandi tímabil. Zooey Deschanel úr She & Him leikur eitt aðalhlutverkið og syngur í elektró-pop bandi (heyr heyr lög að neðan) í myndinni. Ég er að sjálfsögðu algerlega blindur á galla þessara laga. Zooey ah. Af óskiljanlegum ástæðum virðist hún hafa slysast til að trúlofast M. Ward.
Muncausen by Proxy - Sweet Ballad [mp3]
Muncausen by Proxy - Uh-huh [mp3]
**
Ég og Pétur mynduðum nýlega hið eitursvala og kolklikkaða band Bleeding Noses. Gómsætur, melódískur stafrænn harðkjarni með mega emo textagerð. Æfingar eru óreglulegar en góðar. Stefnum á listrænan gjörning / tónleika eftir 2 mánuði. Ég ætla leggja til að við tökum Jared Leto og ógeðslega bandið hans til fyrirmyndar i klæðaburði.. svart svart og svört augnmálning og angist. Bannað að brosa. Við yrðum frekar hot.
**
Coconut Records. Ný plata. Davy.
Coconut Records - I am Young [mp3]
Coconut Records - The Summer [mp3]
febrúar 17 !!
Peep Show.
Ahhh.. Hver elskar ekki peep show.
http://www.youtube.com/watch?v=NHhFPkk_VFE.
febrúar 15 !!
It's just a little touch of faith. It'll be okay.
Ofninn er að flippa. Nú er 25 stiga hiti hérna í herberginu. Frekar næs trópíkal stemming fyrir hitabeltisdýr einsog mig. En frekar súr sunnudagur. Og fjarræn helgi. En fín.
**
Húrra fyrir Suburban Kids with Biblical Names. Ný smáskífa frá þessum hóglátu svíjum og ég mæli með! Búnir að skipta eilítið um gír, en góður gír. Líkist töluvert meira sólóstöffinu sem Johan Hedberg hefur verið að gefa út að undanförnu. Lífsbjargandi tónar.
Suburban Kids with Biblical Names - World Music [mp3]
Suburban Kids with Biblical Names - 1999 [mp3]
**
Telepathe eru ung, sæt og frá Brúkklin. Frekar fínt. Og pródúserað af Dave Sitek úr TV on the Radio. Jájájá.

Telepathe - So Fine [mp3]
Telepathe - Chrome's On It [mp3]
**
Sunnudagsmúsíkin mín. Casiotone for the Painfully Alone. Í mars kemur út platan Advance Base Battery Life sem er samansafn af ýmsum illfáanlegum en áður útgefnum lögum og koverum. Tjékkið á Hot Boyz koverinu sem Missy Elliott hlýtur að vera sátt með.
CFTPA - Lesley Gore On The T.A.M.I. Show (Version) [mp3]
CFTPA - Hot Boyz (feat. Dear Nora) [mp3]
**
Og sunnudags-bío-gláp-undir-sæng. Michael Haneke og Funny Games endurgerðin frá 2007. Jájájá.

**
Og sænskur bónus. Mikið uppáhalds Bear Quartet frá 2005 og svo Milberg. Lisa Milberg úr sænsku ofurgrúppunni The Concretes er flutt til Englands. Nóg um það. Hún er með svaka fínt sóló stöff.
The Bear Quartet - Today I will dress up [mp3]
Milberg - It was the End [mp3]
**
febrúar 02 !!
Just roar a little. Come, Come.
Ég er örvinglaður og aðframkominn af eftirtíð. Og svo dreymir mig bara endalausar martraðir. Og súrar, súrar martraðir. Hressandi.

**
Holy Moly! Nýtt Junior Boys stöff sem er afar velkomið á þessu heimili. Slóttugir og hádramatískir elektrótónar. Mmm. Jájá.
Junior Boys - Hazel [mp3]
Junior Boys - Parallel Lines [mp3]
**
Casual Midnight Conversations. Right over the top. Ég keypti glæsilegasta úr lífs míns á 800 krónur um helgina. Næstum fríkeypis. Svokallað há-tækni-úr. Það skilur fólk eftir forviða og frá sér numið af hrifningu. Úrið er með innbyggðri reiknimaskínu sem ég nota við hvert tækifæri. Ragnar Rael tók loftmyndirnar hér að neðan á bar landsmanna. Hann kveður Ísland til að fara aftur til kærustu sinnar og Helsinki á miðvikudag. Þetta var því FAUX PAS rebel alliance helgi. Og hlustið.
Sebastian Tellier - Kilometer (Aeroplane Italo 84 remix) [mp3]
Emil & Friend - Downed Economy [mp3]



**
Tvídrangar og nærbuxur. Það er kominn tími á gott twin peaks session. Best væri þó ef maður gæti tekið góða pásu og helgað hérumbil 16 tímum af lífi mínu samfleytt í maraþonið. Kærkomið. Uuumm. Jebb.

Hér að neðan eru þemalögin fyrir tvídranga og lauru palmer. Úff. ! Lof sé David Lynch.
Angelo Badalamenti - Twin Peaks Theme [mp3]
Angelo Badalamenti - Laura Palmer's Theme [mp3]
**
Og loks. Katie Stelmanis. Módern Kate Bush í tilraunargírnum? Eða ég veit ekki. En þetta er frekar awesome. Og nokkuð skemmtilegt kover af Arethu Franklin súperslagaranum Natural Woman. Tekið af plötunni Join Us sem kom út í fyrra.

Katie Stelmanis - Join Us [mp3]
Katie Stelmanis - Natural Woman [mp3]
janúar 21 !!
Under the cover.
Færsla númer 300! Holy moly. Reyndar hætti ég þessu öllu þarna á tímabili og eyddi öllum fyrri færslum. En þetta er semsagt númer 300 frá þeirri angursemi. Eða nei, frá upphafi. Húrra. Og allt að verða vitlaust og svona. Hressandi.

**
Fever Ray. FEVER RAY. STOP. HLUSTIÐ.
Fever Ray - Seven [mp3]
Fever Ray - Dry and Dusty [mp3]
Fever Ray - Im Not Done [mp3]
**
Ný plata frá The Decemberist væntanleg í mars. Á henni mun Colin Meloy syngja um hasar og áhættur ástarinnar. Þetta lag er tekið af á heimasíðu sveitarinnar og er ágætis forsmekkur. Meðfylgjandi er einnig melankólíuslagarinn 'engine driver' af Picaresque.
The Decemberists - The Rakes Song [mp3]
The Decemberists - The Engine Driver [mp3]
**
Whites Boy Alive með nýja plötu. Og Mjög gott. Fannst fyrsta platan góð. Og gleymdi henni svo. Og enduruppgvötaði. Og áttaði mig á því hversu geðveik hún er. Og Erlend Oye úr Kings of Convenience og félagar sem sagt mættir aftur. Og Erlend í sinni norsk-berlínskuuu togstreitu mokar ýmislegu upp á yfirborðið á sinn laumulega hátt. Og þetta er glooooríus sjitt.
The Whitest Boy Alive - Courage [mp3]
The Whitest Boy Alive - Promise less or do more [mp3]
janúar 10 !!
Let's make better mistakes tomorrow.
Jahá. 2009 byrjar vel. Ég get ekki sagt annað en nýja Animal Collective sé furðulega dásamleg. Sennilega þeirra veigamesta plata hingað til. Ég var reyndar tvístigandi í fyrstu með hana - fannst vanta eitthverja ákefð og kraft. Og svo hlustaði ég aftur. Og aftur. Og aftur. Og fokk. Þetta er helvíti, helvíti sjúkt stöff. Og alveg yndislega grípandi og ánetjandi á sinn afskræmda hátt. Aðgengilegri en fyrri verk og eflaust í huga eitthverra aðdáenda þeirra ekkert annað en argasta popp. En óyggjandi framrás krakkar. Framrás! Hlustið! Úff.
Animal Collective - My Girls [mp3]
Animal Collective - Guys Eyes [mp3]
**
Ég mismæli mig ansi oft og skemmtilega. En já, ný kaffivél í vinnunni sem malar brakandi ferskar kaffibaunir frá frumskógum brasililíu með stórkostlegum árangri. Getur flóað mjólkina sjálf og alveg bráðgervigreind. En já, náunginn sem kom að setja hana upp passaði sig víst sérstaklega þegar hann sagði orðið "sjálfsflóandi". Ég skil hann frekar vel.
**
Ég henti inn laginu If I Had a Heart með Fever Ray (sólóstöff frá Karin Dreijer Andersson úr The Knife) um daginn. Ég mæli með að þið glápið á vídjóið!
janúar 07 !!
KOMMON. PLÍS. HA!
Mmmm. Memory Cassette eru yndi. Nýlega gáfu þau út fjögurra laga smáskífu Rewind while sleepy.

Memory Cassette - Ghost In The Boombox [mp3]
**
Koushik. Indversk / kanadísk hip hop elektróníkal tilraunargleði. Koushik hefur áður unnið með listamönnum á borð við Four Tet, Caribou and Madvivivillain með hressandi árangri. Fjársjóður af himneskum tónum. Platan Out My Window kom út á síðasta ári en barst til eyrna minna alltof, alltof seint. Betra er seint en aldrei. Demantur!
Koushik - Be With [mp3]
Koushik - Lying In The Sun [mp3]
**
Anticon er samheiti yfir gæði. Ég hef hlustað töluvert á sóloplötu trommarans Zach Hill úr Hella og hinni stórbrengluðu og stórkostlegu Nervous Cop. Astrological Straits heitir gripurinn. Tónlist sem getur gert bráðskemmtilegt útslag fyrir fólk sem hangir á bláþræði brjálæðis og bilunar. Neeinei, þetta er róandi og slakandi. Bætir og kætir. Mér skylst að ýmsir snillingar komi við sögu á skífunni.. Les Claypool, Marnie Stern, No Age félagarnir, !!! og LCD hljóðkerfi.

Zach Hill - Dark Art [mp3]
Zach Hill - Hindsight Is Nowhere [mp3]
**
Og smá helvíti af sænsku indí poppi til að rústa þessari færslu alveg. Hugljúft, vænt, indælt og fokkin húmorískt. Fokk. Hljómsveitin heitir Melpo Mene og platan heitir bring the lions out.
Melpo Mene - I adore you [mp3]
Melpo Mene - Snakes and Lions [mp3]
janúar 04 !!
ICHATSUKU!
Lag.
Brendan Benson - What I'm looking for [mp3]
Það held ég.
desember 27 !!
Time-Out.
Jææja. Uppgjör og árslisti. Frekar blekaður árslisti. Og frekar blekað ár. Annars var árið frekar gott og afar tilbreytingaríkt. Flutti reyndar full oft fyrir minn smekk. Fór í gegnum góða Nick Hornby krísu í öllum sínum regnboga. Vann ansi mikið. Hlustaði ansi mikið.
Ég vona allavega þið hafið haft eitthvað gaman af þessari síðu á árinu sem er að líða, hversu vel sem þið þekkið mig nú. Hvernig væri að kasta nýárskveðju í kommentakerfið! Ha?
Uppgvötun ársins: Twin Peaks.

**
Þetta hef ég meðal annars fílað af músíkk á árinu:
25. Hot Chip - Made in the Dark

Tróð sér inn á listann. Ekki gallalaus en helvíti góð. Átti töluvert í að ná sömu hæðum og fyrirrennari hennar, 'The Warning'. Platan eru uppfull af algerum andstæðu - innilegum og hugljúfum ballöðum versus súper-hressum dansgólfshitturum. Þeir hafa fullkomið tak á elektrónískum hressleika sínum en sterkasti vígi plötunnar er engu að síður ballöðunar. Ég er sannarlega að meta þessa innilegu og ljúfsáru hlið Hot Chip. Ef þú, lesandi góður, verður eitthvern tíman fullur sjáfsvorkunnar, labbandi niðurlútur um öngstræti Reykjavíkur, nýkominn úr freyðandi tilfinningabaði og vantar nauðsynlega þematónlist í eyrun til að fullkomna stemmingu, þá geturu svo sannarlega fundið hana á Made in the Dark, svo lengi sem þú skippar yfir brjáluðu súper-dansgólfs-hittarana sem koma inn á milli. Þetta var málfræðilega versta setning lífs míns.
Hot Chip - Made In The Dark [mp3]
Hot Chip - We’re Looking For A Lot Of Love [mp3]
24. Air France - No Way Down

Ég er ótrúlega veikur fyrir þessu sándi. Úrkynjaður sænskur blendingur af trópíkal-elektró kynsvalli. Ekki-hægt-að-hætta----hlusta! Air France hafa vaxið helvítið mikið og fara ekki neinn meðalveg í sköpun sinni. Ein mesti gleðigjafi ársins og hjá Air France kárnar gamanið aldrei. Hlustið!
Air France - June Evenings [mp3]
Air France - No Excuses [mp3]
23. Pete and the Pirates - Little Death

Jææjja. Forkólfur sveitarinnar er Thomas nokkur Sanders, sem er ábyrgur fyrir snilldinni Tap Tap og hinni stórkostlegu plötu Lanzafame. En Little Death inniheldur m.a. lögin Come on Feet og She doesn't belong to Me sem hafa áður verið gefið út undir merkjum Tap Tap í öllu lífrænni búning. En já. Little Death er alls ekki gallalaus plata en það er eitthvað mjög heillandi og áþreifanlegt við hana sem ég á erfitt að koma í orð. Hún varð að undarlegri þematónlist hjá mér í sumar. Eins furðulegt og það kann að hljóma. Jájájá.
Pete And The Pirates - She Doesn't Belong To Me [mp3]
Pete And The Pirates - Bright Lights [mp3]
22. The Rural Alberta Advantage - Hometowns

Helvíti öflug frum hjá The Rural Alberta Advantage. Sveitin er frá Toronto og virðist vera ansi hryggbrotin enda er platan sneisafull af íburðarmiklum melankólíum. Ekki mikið nýtt á ferðinni en það breytir því ekki að þetta er helvíti gott stöff.
The Rural Alberta Advantage - Sleep All Day [mp3]
The Rural Alberta Advantage - Don't Haunt This Place [mp3]
The Rural Alberta Advantage - Drain the Blood [mp3]
21. Vampire Weekend - Vampire Weekend

Það er svo sannarlega eitthvað við þessa hljómsveit sem ég þoli ekki. Hrikalegt nafn og svo eru þessir gaurar eflaust yndislega sjálfumglaðir óþokkar. En sama hversu ég reyni að þola þá ekki, þá get ég bara ekki neitað að þessi plata er einstaklega vel heppnuð. Stútfull af krókum og frambærilegum lögum. Þeir ýta poppinu sínu á ferkan hátt á sína ystu heimavistar nöf og það tekst fullkomlega. Æji fokk, þetta er frábært stöff.
Vampire Weekend - Campus [mp3]
Vampire Weekend - Mansarf Roof [mp3]
20. Beach House - Devotion

Beach House - Gila [mp3]
Beach House - Wedding Bell [mp3]
Beach House - You came to me [mp3]
Beach House dúettinn er í miklu uppáhaldi. Maður þarf eitthvern veginn að gíra sig í réttu stemminguna til að hlusta á þau. Draumkennt, ævintýralegt og dáleiðandi stöff. Þessi hljóðheimur þeirra er kjörinn til að heimsækja seint, seint í láréttri stöðu.
19. Lykke Li - Youth Novels
Argasta pop og það bara helvíti fínt. Hin sænska Lykke Li er sæt stelpa í krísu. Næs! Björn (úr Petur, Bjorn & Jonh) með puttana í þessu og er útkoman ansi ánetjandi og sykursæt.

Lykke Li - Breaking It Up [mp3]
Lykke Li - Little Bit [mp3]
18. Moofish Catfish - On a Sunbeam to Your Heart

Meira sænskt. Lo-fi iiiindí popp sem á verðugt sæti á listanum. Hrátt, safaríkt og afskalega saklaust. Mmm!
Moofish Catfish - At The Club [mp3]
Moofish Catfish - Crocodile Tears [mp3]
17. Hercules & Love Affair - Hercules & Love Affair

Hið mikilfenglega og afar hýra diskó-elektró-pop band Hercules & Love Affair á verðugt sæti á árslistanum. Tilkomumikið afsprengi DFA þar sem söngfuglinum Antony ljær sveitinni rödd sína í alls 5 lögum.
Hercules & Love Affair - Time Will [mp3]
Hercules & Love Affair - Blind [mp3]
16. Sin Fang Bous - Clangour

Ein fegursta plata ársins. Ævintýralegar útsetningar og pælingar sem komast mjög vel til skila. Ég varð hugfanginn frá fyrsta tón.
Sin Fang Bous - Sunken Ship [mp3]
Sin Fang Bous - We Belong [mp3]
15. Gang Gang Dance - Saint Dymphna

Gang Gang Dance mættu aftur á árinu með sinn temmilega súra, experimental hressleika. Helvíti grípandi og aggressíft. Aðgengilegt og ætti ekki svíkja neinn. Súper!
Gang Gang Dance - First Communion [mp3]
Gang Gang Dance - House Jam [mp3]
14. Crystal Stilts - Alight of Night

Þessi plata fékk ósjaldan að hljóma núna seinni parts árs enda rakin snilld frá Brúúklin. Garage í sækadelíu naumhyggju. Eitursvalt sjitt sem límir sig á heilann þinn!
Crystal Stilts - SinKing [mp3]
Crystal Stilts - Departure [mp3]
Crystal Stilts - Shattered Shine [mp3]
13. Wolf Parade - At Mount Zoomer

Já. Ég veit ekki enn hvar ég hef þessa plötu. Hún hefur hefur verið í hálfgerðru stormviðri á ánægjuvog Einars. Eina stundina ofvaxinn snilld en svo dettur hún inn í einhvað svarthol og gleymist. Mig grunar að hún sé ansi vanmetin hérna í þrettánda sætinu.
Wolf Parade - Soldier's Grin [mp3]
12. FM Belfast - How to make Friends

Besta íslenska plata ársins. Ég hafði sjálfur beðið eftir þessari plötu með mikilli eftirvæntingu og ég varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. kynngimögnuð tónlist, afar hressandi textar og bandið laus við alla tilgerð og rembing. FM Belfast áttu Iceland Airwaves hátíðina í ár og voru "Best á balli". Par Avion er dangsgólfsslagari ársins. Gómsæt danstónlist sem skilur mann eftir sveittan, öskrandi 'meeeiira?!'.
FM Belfast - President [mp3]
11. Lindstrøm - Where You Go I Go Too

Besta og metnaðarfyllsta verk Lindstrøm hingað til. Þrjú lög og er titillagið tæpar 30 mínútur í heild sinni. Margslungið retróspektíft elektrónískt sjitt sem tekur mann heljargreipum frá upphafi til enda og rennur óaðfinnalega í gegn. Ég kann ekki við að pósta mp3. En treystið mér, kaupið, þið verið ekki svikin!
10. Department of Eagles - In Ear Park.

En þetta er mikill og persónulegur demantur. Daniel rífur hjartað úr helli sínum og lætur streyma í þessa plötu.
Department of Eagles - No One Does it Like You [mp3]
Department of Eagles - Phantom Planet [mp3]
09. The Dodos - Visiter

Stundum geta hljómsveitarnöfn ollið því að ég hreinlega tek þá meðvituðu ákvörðun að horfa framhjá sveitinni. Hunsa. Gefa engan gaum. Hafa að engu. Virða að vettugi eða láta sem ég sjái ekki. Eða þið vitið. Það átti svo sannarlega við hljómsveitina The Dodos. Þetta nafn er útí hött. Þvílíkir furðurassar atarna. En. Það var ekki fyrr en Haukur fór að lauma lögum þeirra í spilun á barónsstíg að ég til allra lukku kynntist Visiter plötunni. Hvílíkur gripur. Heilsteyptar og persónulegar lagasmíðar, Ég tók þá í sátt og hrópaði húrra.
The Dodos - Ashley [mp3]
The Dodos - Winter [mp3]
The Dodos - Fools [mp3]
08. Tapes 'n Tapes - Walk it Off

Þessi plata vann á og vann á og sat eftir sem hrein gersemi í mínum eyrum. Nokkuð hreinræktað indírokk. Time of Songs með eftirminnilegri lögum ársins.
Tapes 'n Tapes - Time of Songs [mp3]
Tapes 'n Tapes - George Michael [mp3]
07. M83 - Saturdays = Youth

Besta besta plata M83 til þessa að mínu viti. Geimsteinn!
M83 - We Own The Sky [mp3]
M83 - Kim and Jessie [mp3]
06. Deerhunter - Microcastle / Weird Era Cont.

Deerhunter - Agoraphobia [mp3]
Deerhunter - Never Stops [mp3]
05. TV on the Radio - Dear Science

Hér er um að ræða stórvirki TV on the Radio. Ljúffeng en ekki beint áreynslulausasta plata listans. PÞarfnast töluverðar hlustunar en eftir situr ein metnaðarfyllsta og glæsta verk ársins. Strengjum og véluðum drunum ægir hér fullkomlega saman og er útkoman helvíti himnesk. Unaðslegt sjitt.
TV on the Radio - Love Dog [mp3]
TV on the Radio - Stork And Owl [mp3]
04. Portishead - Third

Sjúkt.
Portishead - Machine Gun [mp3]
Portishead - Hunter [mp3]
03. Fleet Foxes - Fleet Foxes

Hlustaði á þessa plötu töluvert langt eftir að hún kom út. Ég sá ekki fram á að geta sleppt henni eftir allt það lof sem búið var að ausa yfir hana. En ekki slæmt múv hjá mér það. Hrífandi og hlý snilld sem sómar sér einstakelga vel á köldum vetrardegi. Manni hálfpartinn langar að safna skeggi, flytja í einhvern afskekktan kofa upp í fjöllum og setja þennan vinýl á fóninn. Ómfagurt og tímalaust meistaraverk.
Fleet Foxes - Your Protector [mp3]
Fleet Foxes - Tiger Mountain Peasant Song [mp3]
Fleet Foxes - White Winter Hymnal [mp3]
02. The Walkmen - You & Me

The Walkmen eru hér með sínu bestu plötu frá upphafi sem er í senn kraftmikil og tilfinningaþrungin. "In the New Year" er lag ársins - epísk snilld sem skilur mann eftir hálf dolfallinn með gæsahúð - "It's going to be a good year" einsog segir í textanum. Amen fyrir því. Þessi plata krefst þess að þú spilir hana aftur og afturr.
The Walkmen - In the New Year [mp3]
The Walkmen - On The Water [mp3]
01. Cut Copy - Ghost Colours

Þessi plata er ómótstæðileg og heillaði mig mest á árinu 2008. Þetta er fullnægjandi dansgólfs extravangaza bonanza fyrir líkama og sál. Jæja, ég er búinn að blaðra of mikið og hef ekki tíma í þetta lýsingarorðaklám og að nostra frekar við þessa færslu. Ég þarf víst að vakna í flug til Danmerkur eftir 2 tíma. En að mínu mati, plata ársins 2008. Amen.
Cut Copy - Hearts on Fire [mp3]
Cut Copy - Feel the Love [mp3]
Cut Copy - Far Away [mp3]
***
Jáhá. Helvíti gott tónlistarár. Annað sem komst ekki inn en vert að minnast á: Deerhoof, Of Montreal, Sigur Rós, Atlas Sound, Santogold, Fuck BUttons, The Last Shadow Puppets, Frightened Rabbit, Crystal Castles, Okkervil River, Black Mountain mmm.. Og margt annað.
desember 22 !!
R.
Já. Ég get ekki lengur fundið quote eða annað tilgangslaust til að setja í þessar fyrirsagnir og því mun ég stóla á bókstafi. En hei, Foxes! eru í bossanova jólaskapi.
Foxes! - Christmas Songs [mp3]
Og ný plata frá Jason Schwartzman í jaanúar. Hér er smá forsmekkur.
Coconut Records - Microphone [mp3]
**
Ofmat. Líkaminn minn er í frekar miklu rugli. Ég líkist núna helst biluðum róbota og er óvenju stirðbusalegur í fasi. Seint, seint á föstudag ofmat ég hlaupakunnáttu mína stórlega. Ástæðan fyrir hlaupum mínum er óljós, hugsanlega var ég á hlaupum undan eitthverju en einnig er líklegt að ég hafi viljað komast heim með effektívari hætti en venjulega. En til að gera langa sögu stutta endaði ég liggjandi í jörðinni ofarlega á laugarveginum.
Á meðan ég lág á gangstéttinni hugsaði ég með mér að ég þyrfti líklegast að reyna standa upp. Ég gerði tilraun til þess en fann hvernig líkaminn streyttist á móti.. svo ég ákvað að snúa mér bara við. Því næst hugsaði ég að það væri bara betra að liggja þarna áfram um stund og meta stöðuna betur. Sem ég gerði í skamma stund þar til ókunngur, ölvaður og hjálpsamur aðili skrölti framhjá og spurði hvort ég þyrfti á hjálp að halda. Ég taldi það skynsamlegt og þáði þá aðstoð hans með þökkum. Þetta ætti að kenna mér hætta þessum helvítis hlaupum.
desember 20 !!
Þú veist af allri hlýjunni. Þú veist ég verð að fara.
Jólin fraaamundan.. Jólaskap. Ha! Jájá. Ekki er amalegt að hlusta bara á smá jóla miiiiuxtape? Jáaa í muxtape missi er ágætt að setja bara upp copycat. Hentar vel að láta bara rúlla. Hér má sjá yfirlit barónsstígs mixtéeips eldhússins. Eeeeinar, verri helmingur skeleeeton klub er hér, Robomat er ferskur og fleiiiri.
En hei!

desember 15 !!
Brennidepill.
Jæææja. Betra seint en aldrei. Ha!?
**
Árslisti á næstunni. Svona hér-um-bil. Hann er nokkurn veginn á hreinu í kollinum. Þokkalegasta ár. Allavega tónlistarlega séð.
**
Búinn að hlusta ansi mikið á Clangour plötu Sin Fang Bous (sem er sóló prójekt Sindra úr Seabear). Frábært stöff! Mæli með! Hlustið!

Sin Fang Bous - Sunken Ship [mp3]
Sin Fang Bous - We Belong [mp3]
**
Og gríðargóð gæsahúð frá hinni hjartnæmu Karin Dreijer Andersson úr The Knife. Hressilegt, andlegt gjaldþrot. Fever Ray. Þetta lofar afar, afar góðu.
Fever Ray - If I had a Heart [mp3]
**
Og loks Chairlift sem eru alveg á mörkunum. Sykursætt popp sem gæti límt sig á heilann þinn og ber því að meðhöndla gætilega. Ég er ansi mikill sökker fyrir þessu.
Chairlift - Planet Health [mp3]
Chairlift - Bruises [mp3]
Chairlift - Evident Utensil [mp3]









