júlí 11, 2007
Ég elska YouTube.
Heitasti skíturinn í Rússlandi um þessar mundir. Ég veit því miður ekki hvað bandið heitir.
Blöögað var þann 11.07.07 18:46Já, YouTube er nokkuð sniðugt dót...
Ætli þetta sé ekki Luxor - nýja bandið frá Einari Bárða?
Ég er alveg að dýrka þessa visual effects sem eru í gangi þarna - verð að finna út hvaða snillingur er á bakvið þá... eða frekar snillingar, af því að það er örugglega heilt teymi sem hefur unnið hörðum höndum að þessu.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ef ég verð einhver tíman jafn myndarlegur og hæfileikur eins þessir ungu menn, þá verður líf mitt fullkomið. Ég myndi skera eyru mín af með ryðguðu skrúfjárni ef ég fengi eyru þeirra í staðinn!!
Annars er ég viss um að þessir gaurar séu hinir týndu bræður Vernharð Þorleifssonar sem lék Venna Páer svo eftirminnilega í sammnefdum sjónvarpsþætti. Mér þykir ekki ólíklegt að móðir þeirra hafi orðið svo skelkuð þegar hún sá eyrun á þeim að hún hafi sent þessa fjóra í gúlag í Rússlandi. En í dag sér hún örugglega eftir því, enda útstæð eyru það heitasta í dag. Ég tala nú ekki um ef menn geta líka sungið og dansað. Þvílíkir hæfileikar.
Ég segi þessa menn á Airwaves 2007!
Bjössi Kommentaði þann 12.07.07 01:11- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
jáá þetta er jólalag sýnist mér, fínt stöff
maple Kommentaði þann 12.07.07 10:35- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Rússar?!? Ég get ekki betur séð en að þetta séu nýju strákarnir hans Einars Bárðar, sem sagt hljómsveitin Luxor ... og hvað hreiminn varðar, þá eru þeir víst flestir úr Eyjum.
Hafsteinn Kommentaði þann 12.07.07 13:33- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Jú það getur staðist með Eyjar. Taktvissari menn er erfitt að finna - þeir smella fingrum og slá í læri í upphafi myndbandsins (3:45) allir úr takt. Ég sé fyrir mér upptökuna - eflaust ekkert hljóð og leikstjórinn: "Jæja strákar, dillið ykkur smá og smellið fingrum fyrir mig" og svo kom einhver klippigaur sem klúðraði þessu ennfrekar. En tæknibrellurnar frábærar engu að síður, jólabjallan (1:20) er stórbrotin.
Einar Kommentaði þann 12.07.07 13:43- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Ég sé fyrir mér að þeir hafi gert þetta inn í herbergi eins þeirra;)
Ingunn Kommentaði þann 12.07.07 20:54- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -