pleijlisti Take Me Home!! um mig

febrúar 22, 2009

DJ Lysander Devore Byrne.

Bammbammbammbammbammbamm. Og krass! Tónleikarík helgi að baki. En ég er búinn að fá hressilegt óþol fyrir þessu næturlífi. En já. Sunnudagsbíó og Yes Man. Kom nú bara á óvart. Og gemmer rómantík! Ég er að spá í að breytast í hopeless-romantik naívista. Það væri hressandi tímabil. Zooey Deschanel úr She & Him leikur eitt aðalhlutverkið og syngur í elektró-pop bandi (heyr heyr lög að neðan) í myndinni. Ég er að sjálfsögðu algerlega blindur á galla þessara laga. Zooey ah. Af óskiljanlegum ástæðum virðist hún hafa slysast til að trúlofast M. Ward.

Muncausen by Proxy - Sweet Ballad [mp3]
Muncausen by Proxy - Uh-huh [mp3]

**

Ég og Pétur mynduðum nýlega hið eitursvala og kolklikkaða band Bleeding Noses. Gómsætur, melódískur stafrænn harðkjarni með mega emo textagerð. Æfingar eru óreglulegar en góðar. Stefnum á listrænan gjörning / tónleika eftir 2 mánuði. Ég ætla leggja til að við tökum Jared Leto og ógeðslega bandið hans til fyrirmyndar i klæðaburði.. svart svart og svört augnmálning og angist. Bannað að brosa. Við yrðum frekar hot.

**

Coconut Records. Ný plata. Davy.

Coconut Records - I am Young [mp3]
Coconut Records - The Summer [mp3]

Blöögað var þann 22.02.09 23:53
Komment...

já mig langar líka í óstoppandi sleik við Sóei. Var einmitt að horfa á hana í gær á skíðavélinni í wörld klass þar sem hún var að leika aukahlutverk í mynd með matthew makkonahejl

maple Kommentaði þann 23.02.09 08:22
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Já, Zooey maður... damn. Want. Kraumandi krydduð krúttbomba.
Zooey aðdáendur ættu að tékka á Boner Party tömblr blööginu, þeir eru sjúkir í Zooey, dæmi: http://bonerparty.tumblr.com/post/76043763

Textinn í lögunum hjá Muncausen by Proxy er náttúrulega bara snilld. "...happy networking, asshole" :)

Töff, töff - hlakka til að heyra í funheitu efni frá Bleeding Noses. Kemur út single bráðum?

Hannes Kommentaði þann 23.02.09 20:32
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

já ég var líka að horfa á hana zooey um helgina. langaði samt ekki í sleik, þaðan af síður óstoppandi.
svo prófaði ég líka um helgina spotify. hafiði tékkað á því? virkar því miður ekki hérna á íslandi. mjög skemmtilegt forrit. tók nokkur test til að sjá úrvalið og það kom alveg skemmtilega á óvart...

er gogoyoko ekki í bullandi samkeppni við svona græju?

sigga Kommentaði þann 23.02.09 23:02
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Haha! Já. Hún er frekar hressandi. En já, nei ekki prófað spotify og soldið skoðað og lítur vel út. En maður hlustar bara á muncausen og fer í óstoppandi sleik við sóei Jájájá..

Einar Kommentaði þann 24.02.09 21:55
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -