júlí 26, 2010
MISGUIDED GHOST !
ÖÖö. Of mikil tónlist, of langur tími. Of mikil bólga í ennisholum. Of mikil helgar-gleymska. Nóg um það. En smá uppfærsla með mikilvægri og nýlegri tónlist. Part 2 seinna í vikunni.
Karaocake. Mjög skemmtilegt tríó frá París. indí/raf/popp með frönskum naumhyggjubrag. Minnir mig á köflum á 70's minimal syntha-poppið. Ansi næs. Gáfu nýverið út plötuna Rows & Stiches sem er búin að eiga hug minn og eyru undanfarna daga. Tjé3ekk.

Karaocake - It Doesn't Take a Whole Week [mp3]
Karaocake - Medication [mp3]
**
Sunglasses. Brrrakandi ferskt band frá Savannah sem mun án efa sogast inn í hypemaskínuna á þessu ári. Poppsýra einsog hún gerist best. Launsonur Animal Collective og MGMT. Eða sennilega ekki. En þessi lög eru tekin af samnefndri EP plötu sem kom nýverið út Guuudsjiit.

Sunglasses - Referee [mp3]
Sunglasses - Stand Fast [mp3]
**
Soft Healer. Ljúft og draumkennt popp frá Austin. Tekið af 7-tommunni Gentle One. Veit ekki mikið um þennan dúett, en það skiptir ekki öllu, þetta er næs og rúllar oofur-vel í gegn.

Soft Healer - Movie Light [mp3]
**
Ljúfsár og viðkvæmur Perfume Genius. Platan Learning hefur verið að fá dúndurdóma á interwebsinu og ekki að ástæðulausu. Hér eru tvö mjög fíin.

Perfume Genius - Learning [mp3]
Perfume Genius - Mr. Peterson [mp3]
**
Melódískt psych-pop/hip-hop wit' bleeps n' beeps og fínum falsettum hér og þar. 21 árs gutti og eiginlega ein af betri plötum ársins so far. Anticon klikkar ei.

Baths - Hall [mp3]
Baths - You're My Excuse To Travel [mp3]
**
Og að lokum. Blackbird Blackbird. Smoooov elektró. Sumarlegt og flæðir óaðfinnanlega í gegn. Fínustu bakgrunnstónar fyrir biturt tölvu-vinnandi-fólk á sumardögum.
Blackbird Blackbird - Hawaii [mp3]
Blackbird Blackbird - So Sorry Girl [mp3]
þetta er alveg svakalega emo allt hjá þér, þú verður að hætta að vera svona mikill viðkvæmur downer, gengur ekki þessi óhamingja og tilfnningaofgnótt allan daginn. ættir að snoða á þér hausinn og skella öskrandi technó á fóninn, háma í þig epillur og frussa froðu á fólk þegar þú öskrar á það LET ME SEE YOUR HANDS IN THE AIR!!!!!!!!
maple Kommentaði þann 27.07.10 17:00- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
ég mæli með þessu til að byrja á, góður grunnur: http://www.youtube.com/watch?v=1rh3_r0nbKs
svo kemuru með mér og lalla grensás til konstantín í rúmeníu 2011, hvar við ætlum að detta inn á helstu tekknóklúbba evrópu og reifdansa eins og stúlkan þarna þangað til við dettum niður af vökvaskorti, þá ætlum við á ströndina að tryggja okkur ógeðslega sæta rúmenska gellu eins og hana innu.
maple Kommentaði þann 27.07.10 17:04- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Solid plan Hlynur, solid plan.
Einar Kommentaði þann 28.07.10 11:15- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Woo! New post, my otherwise boring day is saved *brofist*
Juvstahl Kommentaði þann 28.07.10 14:14- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -